Gleðilegt ár allir!
Er búin að hafa það mjög gott yfir hátíðarnar, örugglega of gott - hef reyndar ekki verið að vigta mig neitt sérstaklega undanfarna mánuði þannig að ég er ekki alveg dómbær á það.
Við vinkonurnar vorum komnar á fullt skrið í ræktinni og að reyna að ná stjórn á mataræðinu og þess háttar, svo koma jólin með allt sitt havarí og maður leyfði sér eitt og annað. Vinkonan stakk af í sólina og sumarylinn en ég hélt ótrauð áfram að mæta 2svar í viku í ræktina.
Nú loks verður af flutningum ræktarinnar og haldið ekki að mánaðargjaldið hafi hækkað upp úr öllu valdi - greinilega verið að velja inn í stöðina! Fáránlegt! En ekki meir um það. Fyrir okkur stöllurnar upphófst nú leit að nýrri stöð sem við gætum leyft okkur með góðri samvisku að styrkja.
Fundum hana loks í gær eftir að hafa farið á smá heilsuræktar-leitarrúnt. Ofan á varð Baðhúsið og allt sem því fylgir .. lúkkar amk nokkuð vel eftir breytingarnar. Þannig að stefnan er tekin á að byrja á 5 mánaða tilboðskorti þar og sjá hvernig okkur líkar og hvernig gengur. Ef vel til tekst er maður kannski farin að tala um árskort seinna meir.
Mataræðið er í startholunum. Búið er að útrýma sætindum á heimilinu og tekin ákvörðun um einn nammidag á viku og einnig að ef okkur langar í eitthvað "viðbjóðslegt" þá er aðeins einn take away dagur í vikunni (aka pizza, hamborgari osfrv).
Einnig er ég svoldið spennt að sjá hvernig gengur hjá kunningjakonu minni sem var að fara inn á Reykjalund í "aðhalds" prógrammið. Hver veit nema maður blikki doksa og fái að prófa það ... mér veitir ekki af því.
Byrjaði annars nýja árið ekki nógu vel, vaknaði á nýársmorgun vel kvefuð, með hita og þreytt -var þannig fyrstu 3 dagana af árinu. Kvefið hefur nú ekki yfirgefið mig, heldur situr sem fastast og fékk félagsskap í vikunni Herra Þurr hósti! Nú ét ég sólhatt og c vítamín í lítravís - passa að mér verði ekki kalt og reyni að fá næga hvíld.
En það þýðir ekkert að væla yfir því ... segir maður ekki bara að Fall sé faraheill? 
Svo er spennandi að sjá hvað úr verður með árið 2008, nokkrar pælingar í gangi þó aðallega hjá viðhenginu, verður spennandi að sjá hvort rætist úr því
Ég vona það þó hann sé svoldið ragur í þessu 
Adios amigos ...